7.12.2009 | 18:15
Hlýðniskóli SF og VG
Jæja, þá er hlýðniskóli SF og VG tekið til starfa aftur eftir smá hlé.
Einkunnarorðin eru:
- Þeir sem ekki hlýða strax eru teknir til afsíðis í sérkennslu.
- Fullnaðar árangur að ósk stjórnanda
Ef einhver er ekki nógu tamur í taumi þá er fenginn vara seppi og sá óhlýðni er tekinn afsíðis í sérkennslu.
Á meðan sú kennsla fer fram þá er fenginn hlýðnari seppi sem er tamari í taumi og er meira samstígari öðrum seppum í hringnum.
Ég hef heyrt að næsti seppi í sérkennslu sé Lilja nokkur Mósesdóttir og í kjölfar hennar er ráðgert að Ögmundur fylgi.
Ég sel það ekki dýrar en ég keypti það
.
|
Atli í leyfi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.9.2009 | 17:51
IMF er hin raunverulega ríkisstjórn Íslands
Íslandi er stjórnað af IMF.
Sú "stjórn" sem situr nú er leppstjórn og ekkert annað. Það þarf enginn að segja mér það að þetta fólk sem skipar "ríkisstjórn" Íslands í augnablikinu, sjá ekki hvað er að gerast. En enginn vogar sér að gera neitt.
Englendingar og Hollendingar opnuðu sjálfir fyrir dómstólaleiðina í IceSave málinu og hver heilvita maður myndi grípa það tækifæri feginshendi en ekki núverandi stjórnvöld.
Það stefnir í að hækka skatta á almenning hraustlega. Viðkvæðið er að það vanti pening í kassann.
Það er hægt að auka tekjur án þess að hækka skatta á almenning.
Tökum verð á raforku til álverana sem dæmi.
Það er verið að gefa þeim raforkuna. Ef ég man þetta rétt þá er, í nágrannalöndum okkar, raforkan um 70-80% af rekstarkostnaði álvers. Hér á landi er raforkan um 30% af rekstrarkostnaði.
Þeir leiðrétta mig sem vita betur.
Tekjuskattur ætti í raun að vera bara einn, 10% flatur skattur á línuna. Svo væri hægt að nota vsk-kerfið til að auka neysluskattana. Ríkið myndi fá mikið meira í kassann með einhverju svona heldur en að auka skatta á skítblankan almenning sem nær ekki, fyrir skattahækkanir, endum saman.
Ef ekkert verður gert fyrir fólkið í landinu þá býst ég við að eitthvað fari að gerast fljótlega og sú bylting sem þá verður háð verður ekki háð með pottum og pönnum.
Löggan hefur meira segið gefið það sjálf út að þeir séu efins um hvoru megin linunar þeir muni standa og skil ég þá vel.
|
Háskaleikur að hækka skatta |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.9.2009 | 09:51
Játningar efnahagsböðuls
Ég horfi á þáttinn, sem sýndur var á RÚV í gærkvöldi, og ég sat bara sem bergnuminn.
Ýmsar spurningar vöknuðu í huga mér. Getur verið að ráðamenn þessa lands hafi fengið svona heimsókn? Ef svo er, þá skýrir það ýmislegt um hvað sé að gerast hér. Viðsnúningur Steingríms í öllum helstu málum og Jóhanna, sem ég hélt að hefði barist með almenningi, er orðin að þægum seppa í ól fjármagnseiganda.
Ef svona heimsókn átti sér stað, hversu mikið ætli Jóhanna og Steingrímur hafi þá fengið fyrir að svíkja þjóð sína?
Afhverju er ekki hlustað á Hagsmunasamtök heimilanna og þau ráð, sem þau samtök bjóða upp á, ekki tekin til skoðunar? Ef það er verið að skoða þau ráð, þá gefa þeir sem þessu ráða, sér mjög góðan tíma til þess.
Þeirra vegna ætla ég að vona að þetta sé bara ímyndun í mér en ef þetta er rétt þá langar mig ekki til að vera í þeirra sporum ef upp um þetta kemst.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.8.2009 | 11:29
Bölvun eða blessun?
Verður þessi samþykkt bölvun eða blessun fyrir íslensku þjóðina?
Af einhverjum ástæðum eru einhver ónot í mér gagnvart þessu.
Ég bíð spenntur eftir viðbrögðum frá Hollendingum og Bretum.
Mín skoðun er og hefur alltaf verið sú að íslenska þjóðin á ekki að greiða skuldir einkafyrirtækis. Það átti að láta reyna á þetta fyrir dómstólum hvort okkur bæri að ábyrgjast þennan óskapnað.
Ég lít svo á að vegna handónýtar reglugerðar ESB þá var Íslandi fórnað.
Hvað ætli Bónus-grísinn á Bessastöðum geri?
Í þessu máli er greinileg "GJÁ MILLI ÞINGS OG ÞJÓÐAR" eins og hann sjálfur komst að orði þegar hann neitaði að undirrita fjölmiðlafrumvarpið.
Ef hann verður samkvæmur sjálfum sér þá skrifar hann ekki undir þetta, en hvenær hefur þessi yfirklappstýra útrásadólgana verið samkvæmur sjálfum sér?
|
Icesave-frumvarp samþykkt |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.8.2009 | 23:13
Endilega borga skuldir óreiðumanna
Hvernig er það með þessa stjórn?
Geta þessir menn ekki komið því inn í ferkantaðan hausinn á sér að þjóðinni ber ekki að greiða skuldir óreiðumanna.
Draga stjórnarmenn taum þessara manna sem bjuggu til þessa "tæru snilld"?
Hvað varð um alla þessa peninga?
Afhverju eru þeir, stjórnendur og eigendur, Landsbanka Íslands HF. ekki látnir bakfæra þessar greiðslur sem þeir millifærðu frá Bretlandi í haust og voru ástæða hryðjuverkalagana, sem voru sett á landið?
Fyrir nokkru þá fannst dýflissa á Spáni þar sem voru í mjög góðu ásigkomulagi alls konar áhöld, sem notuð voru til að fá ótrúlegasta fólk til að játa hvað sem er.
Hvernig væri nú að fá eitthvað af þessu dóti lánað og nota þetta á þessa dólga sem orsökuðu þetta?
Þessar "hetjur" mundu ekki endast 5 mínútur og heimta 1 stk. labtop til að bakfæra greiðslurnar.
Viðsnúningur Steingríms J. er alveg með ólíkindum í þessu máli, sem og ýmsum öðrum, og læt ég þessa snilldar mynd fylgja með.

|
Samkomulag að nást |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.8.2009 | 22:57
Hvað er að þessu fólki?
Atvinnuleysi hér á landi mælist næstum því 10%.
Erlent fyrirtæki vill reisa hér verksmiðju sem gæti gefi hátt í 2000 manns atvinnu og þetta lið, Saving Iceland, er á móti því.
Ég er ekki alveg að skilja þetta.
Hverju eru þau að mótmæla? Að auðæfi landsins séu nýtt að einhverju leiti eða er verið að mótmæla því að það sé erlent fyrirtæki sem sér hag í því að nýta eitthvað af auðæfum landsins.
Ef svo er, er það bara ekki allt í lagi?
Betra að nota vatnsaflið heldur en að láta það renna ónýtt í sjóinn.
Er eitthvað að þessu fólki annað en heimska?
Mér er skít sama hvaðan gott kemur, svo framalega sem það kemur.
|
Mótmælendur handteknir |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
6.8.2009 | 18:08
Er ríkisstjórnin heyrnalaus eða skilur hún ekki hvað er að gerast?
Það er grátlegt að fylgjast með úrræðaleysi þessarar ríkisstjórnar.
Það mætti halda að ríkisstjórnin virkilega voni að ESB komi og hjálpi okkur eftir að umsóknin hafi verið send.
Það mun ekki gerast og við höfum ekkert inn í þennan félagsskap að gera eins og staðan er hjá okkur núna. Ríkisstjórnin ætti að byrja leita að raunhæfum úrræðum fyrir heimili landsins í stað þessa að láta sig dreyma um einhverjar töfralausnir sem gerast ekki.
Öll úrræði sem heimilum landsins er boðið upp á, miða öll að því að fresta gjaldþroti heimilanna í tvö eða þrjú ár eða þangað til að ríkið hefur efni á öllum þessum gjaldþrotum. Snillingarnir í stjórn þessa lands telja greinilega að það verði eftir tvö til þrjú ár.
Þessi félagsmálaráðherra er bara sorglegur og mér finnst það skelfilegt til þess að vita að ég taki þátt í því að borga honum laun. Hann á ekki eina einustu krónu af þeim skilið.
Til þeirra sem höfðu hugsað sér að sækja um eitthvað af þessum "aðstoðum" sem boðið er uppá: Ekki gera það, takið frekar skellinn strax í stað þess að fresta því í einhvern tíma með tilheyrandi andlegri vanlíðan.
Svo má bæta við að 200 þús. eru greidd fyrir hvert mál.
Ef málin eru 2000 þá reiknast mér að þetta séu 400 milljónir. Tæpur hálfur milljarður. Það eru til peningar í það en það virðast ekki vera til neinir peningar til að hjálpa fólki t.d. með niðurfellingu eitthvað af skuldunum (klípa af verðtryggingunni) eða eitthvað af þeim úrræðum sem Samtök heimilinna hafa bent á.
|
Þúsundir vilja greiðsluaðlögun |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.7.2009 | 18:23
Bundnir af samvisku sinni?
Allt tal þessa um að þingmenn séu bundnir af sinni eigin sannfæringu virkar á mig sem tómt bull.
Ef gengið er gegn flokks vilja þá eiga þeir sem það gera ekki sjö dagana sæla.
Svandís Svavars þykist geta tekið sjálfstæða og óháða afstöðu gegn óskapnaðnum sem faðir hennar hnoðaði metnaðarlaust saman fyrir þessa óhæfu ríkisstjórn. Trúi því hver sem vill.
Skallagrímur og Jókerinn hefðu átt að gagnrýna Sjálfstæðisflokkinn og Framsókn meira fyrir flokkræðisvald.
Mér sýnist ástandið ekki vera neitt skárra á þessum bænum.
|
Sló ekki á fingurna á Ásmundi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.6.2009 | 15:53
Guð hjálpi Íslandi
Hvort eru þessir menn fífl eða hálfvitar sem eru í þessari nefnd?
Ef það finnast ekki hæfari samningsaðilar en þessir til að semja fyrir Íslands hönd, þá er eins gott að Guð hjálpi Íslandi í þeim aðildarviðræðum sem virðast vera framundan hjá Íslensku þjóðinni.
Illa líst mér á blikuna ef aðildarsamningurinn verður eitthvað á þessa leið.
Hvernig dettur þeim í hug að skrifa undir svona kjaftæði og hvernig dirfast þeir að sýna þjóðinni þennan óskapnað?
Ekki borga þetta. Ekki gera þjóðinni ykkar þetta. ESB er ekki svona mikils virði. Látið á þetta reyna fyrir dómstólum.
Hæfir stjórnmálamenn óskast. Mega vera í hvaða flokki sem er en krafist er að þeir beri lámarks virðingu fyrir þjóð sinni og heiti því að vinna fyrir hana.
|
Engin Icesave-greiðsla í 7 ár |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.3.2009 | 13:57
Breyta kosningalöggjöfinni og það strax
Ef spádómur skoska miðilsins verður að veruleika þá mun sjálfstæðisflokkur og framsókn mynda næstu stjórn og þá mun þessi mynd eiga vel við.
Allar góðar vættir forði íslensku þjóðinni frá því að þessir tveir flokkar fái að stjórna aftur í bráð.
Það þarf að breyta ýmsu áður en þeim verður hleypt að aftur.
En miðað við óbreytta kosninga löggjöf þá mun það gerast aftur og aftur að einn flokkur og í sumum tilfellum einn maður, komist í þá aðstöðu að hafa hreðjatak á heilli þjóð.
En þessu verður sjálfsagt ekki breytt. Það hentar þeim öllum ágætlega að geta kennt samstarfsflokknum um allt sem miður fer. Hvernig er samfylkingin búin að haga sér frá síðustu stjórnarslitum?
Hún er ótrúleg þessi tilvistar kreppa sem íslenska þjóðin er í þessa dagana og það er erfitt að gera það upp við sig hvort maður eigi að kjósa fífl eða hálfvita til að taka ákvaranir um sína framtíð. Fyrir mér eru þetta allt sömu sauðirnir sem í boði eru. Bara mismunandi litur á þeim.
Sterkur leiðtogi óskast. Þarf að vera tilbúinn að bera hag þjóðar sinnar fyrir brjósti.
|
Ekki enn samkomulag um þingstörf |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt 12.5.2009 kl. 12:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.1.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 22835
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar



